...ÞAR SEM ÉG ER...

....Þar er sjaldan þögn...

19.04.2009 19:50:37 / fjallageitin

Þótt líði ár og öld...

Jæja ákvað að henda inn nokkrum orðum. Er löngu hætt að nenna að afsaka lítla virkni mína í bloggheiminum....
Annars er bara nokkuð gott að frétta, lífið gengur sinn vanagang og vorið fer að bresta á:haha: með sínum vanalegu verkum, sauðburði og svo jarðræktarvinnslu sem ég skipti mér voða lítið eða reyndar ekkert af!!! Hlakka til þegar hyssurnar fara að kasta og spá í gæðings efnin sem vonandi verða nokkur;) Ég sjálf fæ undan mínum tveim stólpa ræktunar hryssum, Djásn fékk snemma við Blika frá Nýja-Bæ en Sera seint við Krumma fár Blesastöðum. Gústi á nú víst helming í því folaldi. Hera gamla er geld en Ára mín fór undir hann Óskar frá Blesastöðum, Einsi hélt Gulltoppu undir Tý frá Brúnastöðum. Allt undan spennandi hestum þannig að það eru spennandi tímar framundan:)
Ég er nú ekki búin að vera nógu dugleg að ríða út í vetur. Alltaf vont veður og svo einhvað annað sem glepur hugann. Það er bara svona...
Hvíta mín er bara þrælgóð, er allavegana mjög ánægð með hana. Hún er mjög geðgóð, opin á gangi og alltaf með eyrun fram!! En mín hross verða alltaf fyrir skakkaföllum, hún slasaðist á auga í febrúarlok og sá lítið framan af vetri. Það var kannski heldur ekki til að íta manni út í hesthús.. En þetta er að mestu búið að ganga til baka en hún getur verið hvumpin ef mar er með snöggar hreyfingar þeim megin. Þannig að sjónin er einhvað brengluð enn sem komið er. Við látum samt ekker stöðva okkur:haha:

jæja þá er best að koma sér í að baða skrílinn og koma þeim í bólið:d
Reyni að hripa inn einhverju í sauðbur'inum...;)

» 4 hafa sagt sína skoðun

17.09.2008 13:21:21 / fjallageitin

mér finnst rigningin góð....

Jæja jæja!! Þá er haustið komið með sína indislegu hauststorma og rigningu.. Verð að viðurkenna að það var annsi notalegt að vera inni í gær þegar fellibyls-leifarnar þrusuðu yfir landið!! Gott að vera komin heim af fjalli með hesta og kindur. Reikna ekki með því að það sé gott að vera hestur í girðingunni í Hallarmúlanum í brjáluðu veðri... En fjallfeðin var algjör snild, fínast veður og allt saman dásemdin ein:) Heimtur eru góðar á mínum báðum bæjum en það er kannski ekki að marka þar sem okkar skjátur skila sér oftast niður að hliði er hausta fer. ( og svo eru þær endemis latrækar og feitar) Að mér vitandi tókst engum að drekkja rollunum þetta árið enda kláraðist hrakfalla-kvótinn í fyrra!! Við áttum alveg skilið að fá gott veður og að allt mundi ganga vel.
Annars er voða lítið að frétta, lífið gengur sinn vanagang. Hlakka til næstu helgar og þar næstu. Þá eru smalamennskur og meiri smalamennskur:)
Er búin að draga undan og sleppa flestum hestum á haustbeit. Það verðu gaman að taka inn trippi í okt/nóv og byrja að temja:) Það eru reyndar 3 eðalgæðingar heimvið í Hólunum og svo eru 2 klárar á járnum á Brúnastöðum sem eru á söluplani. Og svo er ég að stefna á að selja folöldin mín .
Gleði fréttir:) Sera er fylfull við Krumma frá Blesastöðum og Djásn er fyllfull við Blika frá Nýjabæ:) Eg er búin að panta grá hryssu og skjóttan hest!! en alsekki FÍFILBLEIKAN!! Þoli ekki þann lit og ég á tvær merar fífilbleikar, reyndar er önnur skjótt en hin blesótt!!
Mar fær víst aldrei það sem mann langar í...
Jæja ættli það sé ekki best að koma sér í að gera einhvað.. Þarf nauðsynlega að bera á öll reiðtygi og svo er það baráttan við þvottavélakörfu-skrímslið ógurlega!! Ef einhverjum leiðist þá vantar mig alltaf auka hönd...
Ég er oft búin að gleyma hrósinu, veit ekki alveg hvort ég sé gleymin eða hvort fólkið í kringum mig stendur sig svona illa....
En allavegana fær Bryndís hrósið þetta skiptið fyrir það að klára lopapeysuna mína sem mér gekk ekkert að klára. Þökk sé henni leit ég ekki út einsog útilegukerling á skemmtilegustu hátíð ársins- réttunum!
Við hittumst heil:)
Elín sem nennir aldrei að blogga...


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.07.2008 16:46:31 / fjallageitin

Spes spurningar...

1. ERTU SKÝRÐ/UR Í HÖFUÐIÐ Á EINHVERJUM? já lang Ömmu minni, Elínu st Briem og var skírð á 100ára afmælisdeginum hennar. 

2. HVENÆR FÓRSTU SÍÐAST AÐ GRÁTA? uss viðurkenni ekki að ég geri svoleiðis.

3. FINNST ÞÉR ÞÚ SKRIFA VEL? það fer eftir því við hver ég miða...

4. HVAÐA KJÖT ER Í UPPÁHALDI HJÁ ÞÉR? Lambakjöt en folaldasteik er oft ljúffeng.

5. ÁTTU BÖRN ? EF JÁ HVAÐ MÖRG? nei ekki einu sinni hund! En Hann Ágúst ingi sér um þetta fyrir  mig;)

6. EF ÞÚ VÆRIR EINHVER ANNAR EN ÞÚ ERT, VÆRIR ÞÚ VINUR ÞINn? Já potttþétt..

7. NOTAR ÞÚ KALDHÆÐNI MIKIÐ? jebb stundum full mikið..

8. FÆRIR ÞÚ Í TEYGJUSTÖKK? Já ef þú borgar!!

9. HVAÐA MORGUNMATUR ER Í UPPÁHALDI HJÁ ÞÉR? Hafragrutur eða rúgbrauð með miklu smjöri og mikilli kæfu... og góður kaffisopi...

10. REIMAR ÞÚ FRÁ ÞEGAR ÞÚ FERÐ ÚR SKÓNUM? nei engar reimar á gúmmurunum..

11. TELUR ÞÚ ÞIG ANDLEGA STERKA/N? já alveg sæmilega.

12. HVERNIG ÍS ER Í UPPÁHALDI HJÁ ÞÉR? emmessís með mikilli súkkulaði sósu...

13. HVAÐ ER ÞAÐ FYRSTA SEM ÞÚ TEKUR EFTIR Í FARI FÓLKS? lykt...

14. Rauður eða bleikur varalitur?  Hvorugt!!!!

15. HVAÐ MISLÍKAR ÞÉR VIÐ SJÁLFAN ÞIG?  bý oft í mínum eigin heimi!

16. HVAÐA MANNESKJU SAKNAR ÞÚ MEST? Fer eftir stað og stund. En fynst oft vanta Afa Gumma og brynhildi.

17. VILTU AÐ ALLIR SEM LESA ÞETTA SVARI ÞESSUM LISTA? ef þeir hafa ekkert þarfara að gera...

18. HVAÐA LIT AF BUXUM OG SKÓM ERU Í NÚNA? Gráum reiðbuxum og risa stórum ullarsokkum af Pabba ( afþví að Pabbi minn er svo stór!!!)

19. HVAÐ VAR ÞAÐ SÍÐASTA SEM ÞÚ BORÐAÐIR? Banani

20. Á HVAÐ ERTU AÐ HLUSTA NÚNA? muldrið í Pésa pípara (aka Pabbi) sem er að skipta um vask..

21. EF ÞÚ VÆRIR LITUR HVAÐA LITUR VÆRIR ÞÚ? Blá því ég er af konunglegum ættum...

22. HVAÐA LYKT FINNST ÞÉR BEST? Lyktin af vorinu, ný slegnu grasi, ný kemdum gæðingi og ferska fjallaloftið:)

23. VIÐ HVERN TALAÐIR ÞÚ SÍÐAST VIÐ Í SÍMA? Söndru pöndru sem er loksins heima eftir langa dvöl í Borgarfirðinum.

24. LÍKAR ÞÉR VEL VIÐ ÞÁ MANNESKJU SEM SENDI ÞÉR ÞESSAR SPURNINGAR? já ótrúlegt en satt en ég mun hefna mín...

25. UPPÁHALDS ÍÞRÓTT SEM ÞÚ HORFIR Á? Hestaíþróttir en þær eru nú ekki oft í sjónvarpinu.

26. HVERNIG ER ÞINN HÁRALITUR? Dökk brúnn en er farin að grána skuggaæega mikið.

27. HVERNIG ER ÞINN AUGNLITUR? brúnn í stíl við hárið:)

28. NOTAR ÞÚ LINSUR? jebb því miður

29. UPPÁHALDS MATUR? Flatkaka með reyktum laxi og miklu smjöri, kaffibolli og kleina í réttunum.

30. HRYLLINGSMYND EÐA GÓÐUR ENDIR? vill maður ekki að allt endi vel???

31. SÍÐASTA BÍÓMYND SEM ÞÚ SÁST Í BÍÓ? Bjólfskviða!!

32. KNÚS OG KOSSAR EÐA LENGRA Á FYRSTA DEITI? Fór eftir því með hverjum deitið var!!

33. UPPÁHALDS EFTIRRÉTTUR? Súkkulaðikaka með ís og ávöxtum

34. HVER ER LÍKLEGASTUR TIL ÞESS AÐ SVARA ÞESSUM LISTA? þú??

35. HVER ER ÓLÍKLEGASTUR TIL ÞESS AÐ SVARA ÞESSU? Pabbi og mamma

36. HVAÐA BÓK ERTU AÐ LESA? Aska eftir Yrsu

37. HVAÐA MYND ER Á MÚSAMOTTUNNI ÞINNI? á ekki einusinni tölvu...

38. Á HVAÐ HORFÐIR ÞÚ Í SJÓNVARPINU Í GÆR? Horfi aldrei á sjónvarpið...

39. ROLLING STONE EÐA BITLARNIR? Bítlarnir

41. HVERJIR ERU ÞÍNIR HELSTU EIGINLEIKAR? Hress og til í allt;) og svo á ég líka sætan kall.. ;)

42. HVAR FÆDDIST ÞÚ? í borg óttans.


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.06.2008 18:44:07 / fjallageitin

Sumarið er tíminn

Halló Halló Ég er alltaf jafn dugleg að skrifa hér inn.. En verð bara að viðurkenna að ég hef margt skemmtilegra að bralla:)
Er komin með nýtt starf, er farin að vinna í Brugghúsinu í Ölvisholti og líkar það bara fínnt. Það á nú við mína að vera innan um öl nokkra daga í viku... Svo get ég líka hjólað í vinnuna;) bensínverðið er ekki alveg eins og það á að vera!! Förum ekki nánar út í þá sálma!!!!!
Á morgun er stefnan sett á fjárbrask, ættlunin er að reka fyrstu ferð eftir hádegið:) vííí get ekki beðið. Það er alveg ótrúlega gaman. Svo á mánudaginn hefst landsmótið. En veit ekki hvernig það samræmist upprekstrinum og heyskap.. en það kemur allt í ljós.
Fór í göngu í gærkveldi. Gengið var inn Tungufelsdal, upp með svartárgili, innað svartárfossi og svo hring til baka. Mjög gaman nema það kom úrhellis demba upp á miðju fjallinu ( sem betur fer í bakið) og allir urðu gegnblautir. En fossinn er mjög fallegur:) Fór í göngu í síðustu viku, þá var gengið með Hvítá og skoðaðar Flúðirnar í Langholtslandi. Það er skrítið hvað maður skoðar ekki það sem er við bæjardyrnar. Hef bara einusinni áður komið að flúðunum og man lítið frá því skipti. En stefnan er sett á fleirri göngtúra í sumar.
Jæja þa´er ég roki út í blíðuna ( það var að stytta upp)
Bæjó í bili
Elín skrelín sem elskar að vera í pollagalla;)

» 4 hafa sagt sína skoðun

16.05.2008 01:20:26 / fjallageitin

Vegurinn að heiman er vegurinn heim...

halló halló alle saman!! langt síðan ég tjáði mig hér síðast. En það hefur einhvern veginn hefur ekki verið tími vegna anna. ( hver er þessi Anna?? he he he) Svona er þetta bara þegar fer að vora, þá er ekki mikið spennandi að hanga inn í tölvunni. ( hún hefur nú sjaldan háð mér tölvusýkin.)
Annars er bara allt gott að frétta. Vaki og sef á skrítunum tímum og er algjörlega búin að mixa sólahringinn í ræmur. En það er svoo gaman;) Var búin að gleyma því hvað það er gaman að vaka á nóttinni og bárdúsa ein í fuglasöng:) síðustu ár er vorið búið að vera tími stress og mikilar vinnu fyrir kynbótasýningar. En núna get ég notið þess í botn að sjá grasið grænka, fuglana syngja og rollurnar jarma. Er bara með 4 hross inni og finnst að alveg nóg!! Tíminn er svo fljótur að fljúga í burtu þegar dagatalið og klukkan skiptir ekki máli. Er að ég held stundum á bjartsýnislyfjum eða gleðipillum, veit ekki hvað er sett í kaffið mitt.. Ég er hálf hoppandi um í gleði og kátínu;)
Tvær af mínum skjátum eru bornar, Dalasól átti 3hvíta hrúta undan Reka frá Sveinungsvík og Paradís átti eina svarta gimbur, eina arnhöfðótta gimbur og ein arnhöfðóttan hrút. Þau eru undan Banka hans Darra. Þannig að þegar við Darri leggjumst á eitt þá kemur út stórgóð útkoma;)

Segi þetta gott í bili
Elín hoppulína á gleðipillu

» 6 hafa sagt sína skoðun

27.03.2008 21:54:42 / fjallageitin

UPPBOÐ!!!

Á næstu dögum verður haldið uppboð í Hólunum á óskilamunum hafi réttur eigandi ekki sannað eignarétt sinn. Það helsta sem verður boðið upp eru: nærbuxur, stuttbuxur og sokkar mis vel lyktandi!! Uppboðshaldarar áskila sér rétt til að taka hæsta boði eða hafna öllum... nánar auglýst síðar.

» 14 hafa sagt sína skoðun

13.02.2008 20:27:02 / fjallageitin

úti er ekki lengur að snjóa...

Komið öll sæl til sjávar og sveita, þó aðalega sveita. Margt og mikið merkilegt hefur á daga mína drifið síðan síðast en þó ekki merkilegra en það að ég nenni engan vegin að rifja það upp!!
Ég er frekar ósátt við að snjórinn sé að yfirgefa landið. loksins kom snjór og þá kvartar fólk og kvartar. Af því að yarisin var fastur eða garðhúsgögnin fuku... en það er frábært að hafa snjó, lyftufæri og svo er alltaf gaman að fara í torfærur.. Á mínum torfærubíl... hehehehe er reyndar búin að keyra útaf einusinni og gerði það með stæl... og bjallaði í Pabba og hann stökk upp frá matarborðinu til hjálpar ósjálfbjarga dótturinni en í millitíðinni komu Einsi Ma og Stóru-Reykja-Geir keyrandi framhjá. Þannig að ef þetta hefði ekki mát fréttast þá hefði ég farið á hausinn í mútu-borgunum...
Svo hefur Dreki greyið verið nokkra daga fastur í heimkeyrslunni í Heimahaganum... og líka í götunni... En það er bara gaman af því...

Skellti mér ásamt góðum hóp vaskra sveitunga á þorrablót í Þjórsárveri síðustu helgi. það var fjör en ekkert jafnast á við Þingborgar-blótið:) Þar var skoo gaman... Svo var eftirpartý fram að hádegi á sunnudeginum!! Hef sjaldan ef ekki bara aldrei skemmt mér svona vel:) Tók mig reyndar hálfan dag að ganga frá og þrífa!! En það var vel þess virði. Hélt reyndar að partý-gestunum hefði tekist að hrekja kettina á brott en þeir skiluðu sér nokkrum dögum seinna:s

Ég er ennþá föst í gjalkera hlutverkinu á pósthúsinu, er ekkert mjög ánægð með það en er að vona að ég fá að skipta um eða eftir páska. Annars tekst mér alltaf vel upp hvar sem ég vinn. Svaraði óvart í símann um daginn: Landsbankinn á selfossi góðan dag!! frekar slæmt þegar maður vinnu hjá Íslandspósti. og þegar konukindinn hinumegin á línunni hváði fattaði ég að ég hefði sagt e-ð vitlaust og í tilraun minni við að leiðrétta mig sagði ég BÚNAÐARBANKINN!!! Það skal engan undra að konan skellti á!!! Já það er svoo erfitt að vera ég!!

Annars er bara allt meinhæft að frétta, hrossinn orðin ágæt ( þau sem á annað borð eiga einhvern möguleika á að verða það) en stefni á að vera bara með 5 um helgina. Eitt fer út í stóð í fleirri bóklega tíma... Ættla þá frekar að taka e-ð í tamningu í staðinn. :)
Jæja er þetta ekki bara að verða ágætt. Annars er ég með tölvu meiðsl ( er mjög illt í vísifingri hægri handar vegna þess að ég pikka bara inn tölur í gjalkera stólnum og nota við það bara þennan eina putta!!!) þannig að ég er hætt í bili. Næsta færsla verður sennilega á vordögum:)
Kveð að sinni
Elín skrelín með báðar hendur á stýri...

» 5 hafa sagt sína skoðun

20.11.2007 19:54:50 / fjallageitin

...Allur pakkinn...

Það er rétt það sem ykkur grunaði!! Ég var rétt við dauðans dyr... Það lýtur allavegana þannig út.. Ég var samt búin að skrifa rosa fína færslu um daginn en gleymdi að vista.. Svo ætlaði eg að blogga um helgina en mundi ekki lylkilorðið!

En allavegan, þá er bara allt ljómandi gott að frétta. Er að bera út póstinn og finnst það bara þrælfínt. :) Ætla samt ekki að gefa upp í hvaða hverfum ég er að bera út í. Svona öryggisins vegna, því ég flokka stundum vitlaust...:^)

Á morgun ætla ég að taka inn og get ekki beðið, ætlaði reyndar að gera það síðustu helgi en á laugardeginum var rúningur og á sunnudaginn var ég í því að taka myndir. Ætla að plata Árnýju til að kenna mér að setja þær inn (veit að það er ekkert mál en þar sem ég er dóttir Pabba míns þá er þetta EKKI mín sterkasta hlið;) Það var mjög gaman að kíkja á stóðið á laugardeginum. Það er búið að rigna svoo mikið, svo var loksins þurrt og það var þvílíkur galsi í liðinu. :) Glens, skvettur og rassakösst:)

Um daginn skaust ég vestur á Gullið. ( í byrjun nóv.)Það var alveg einstakt, takk fyrir mig Dísa og þið öll. Þið eruð best. Það er mjög gott að eiga svona fjölskyldu annars staðar;) Af því að þau eru svooooo frábær, þá kemur HRÓSIÐ í þeirra hlut þessa vikuna og eru þau vel að sigrinum komin:) Er jafnvel að spá í að vera á Borgfiskrigrundu eftir áramót... En samningaviðræðurnar eru ekki alveg í höfn.. ;) Sjáum til hvernig þróast!!

Af fjárstofninum er allt það besta, ég fékk 12 fyrir gerðina og skákaði þar með Einsa ma:klikk: hehehe Þetta voru samt bara þrír hrútar. Þrjár gimbrar voru settar á frá mér. Ég er meiraðasegja búin að finna nöfn á þær! Heiði undan Paradís og Bikar, Dalsá undan Dalasól og Ás og svo systurnar Dásemd og Dásöm undan Dalíu og Bikar. Töff Töff Töff!!

Svo er ég búin að græja skýrsluhaldið fyrir hrossin og komst að því eð þetta eru ekkert svo mörg hross sem við eigum. Talan er sem betur fer komin undir 30!! Sem er bara gott:) Þetta var samt óvenjulega erfið fæðing á þessu skýrslu-dóti, því við höfum alltaf átt bara einlita hesta en nú kemur Hersir hinn ógurlegi með skræpulitinn sinn!! Ég kann bara ekkert litanúmerið fyrir skræplótt!!!

Á laugardaginn næst verður ball ársins ! kornskurðar og heimaslátrunar ball í Þjórsárveri. Skora á alla að skella sér þangað, engin verður svikin af þeim dansleik..

Sjáumst á balli:)

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.09.2007 17:38:07 / fjallageitin

..Fremstir fyrir bragðið...

Góðan Daginn !!

Ætlaði nú bara að henda inn nokkrum orðum... Er á fullu að vinna í SS!! Þrátt fyrir allar mínar yfirlýsingar um að stíga ALDREI aftur þanngað inn fæti!! En neiðin kennir naktri konu að spinna og fátæktri stelpu að vinna!! En þetta er alveg ágætt, er í kjallaranum og sé um pantanir á slátri. Hljómar ekki spennó en ég er með ''skrifstofu'' og fæ í næstu viku síma;)  Þetta er allavegana ekki það leiðinlegasta sem ég hef gert...

Fjallferðin var eftirmynnileg og skemmtileg gullkorn blómstruðu ( þó sérstaklega útúr munninum á honum Pabba mínum...) þótt ferðin hafi einkennst af erfiðleikum, aftakaveðri og drukknuðum skjátum. Það er samt alltaf gaman að fara til fjalls og þetta herðir mann bara. Þótt stundum hafi verið tár á hvarmi þá var líka mikið hlegið.

Ég og Jó fengum okkur ketti, týndum reyndar öðrum áður en við komumst út úr Víkinni en fórum í gær og náðum í aðra! Sallý svarta grenjaði svoo mikið á nóttunni... En Sigurrós er illur köttur og er alltaf að kvæsa!!  Sjáum til hvað okkur helst lengi á þeim..

Ég er farin að halda að Bjarkar-landinn frægi hafi sest full mikið til í mér.. Ég er enn að tala tungum, sagði í vikunni að: það ætti að drepa alla laugardaga í okt! Var sko að meina að það á að drepa lömb alla lauardaga í okt..

Það sem er fram undan er ferð norður í land í Laufskálaréttir:) en þanngað til ætla ég að vinna eins og enginn sé morgundagurinn...

Hrósið fær Perla gamla fyrir að nenna að dratthalast með mér á fjall! Stóð hún sig með sóma eins og henni var von og vísan:)


» 10 hafa sagt sína skoðun

15.08.2007 22:47:42 / fjallageitin

Hellú

Já ég er nú hrædd um það....

Í dag fórum við Árný frænka í bíltúr upp í Hrepp og að sjálfsögðu skelltum við okkur í sund... Í HRUNALAUG!!! Hef aldrei áður farið í hana að degi til og í sundfatnaði.. Og ekki með bjór eða annarskonar eðaldrykk... Þetta var samt mjög gaman:) Takk Árný fyrir góðan dag:)

Þessa vikuna er ég búin að prufa margt nýtt, t.d í gær sló ég garðinn í fyrsta skiptið!! Og í dag fór ég á bak Hvítá minni í fyrsta sinn! Mín eigin ræktun er alveg klassa góð sko;)

Svo var ég að hugsa um að hafa hrós vikunar en þá þarf ég að blogga vikulega og það getur nú alveg vafist fyrir mér þannig að ég ætla að láta það duga bara þegar ég blogga.

Síðustu helgi skelltu við Sandra okkur vestur í paradís. Það var mjög gaman, fengum höfðinglegar móttökur og úr þessu varð mikið djamm og mikil skemmtun:) Alltaf gaman að koma í Lundareykjadalinn og á Eyrina(og auðvita á Fossa) Takk fyrir gistinguna Birta og Helga, vonandi er heilsan komin í lag..

Annars er lítið að frétta, gengur fínt með trippin mín. Er að dunda mér við járningar núna milli annara verka. Alltaf sama lífið í sveitinni:) Það er samt svo frábært að vakna og geta bara rölt út í hús. þoli ekki að keyra! Þurfti á Drekanum í Kaupstaðinn í gær og velti því fyrir mér hvort hann væri farinn að framleiða bensín( sá fram á stórgróða..) En málið er bara að ég þarf ekkert af bæ, voða lítið allavegana. Bílinn eyðir ekki miklu standandi í hlaðinu.

Hrós vikunar fær: hinn yndislegi og frábæri Einsi Ma!! Hann er ótrúleg naskur drengurinn við ýmsa hluti, t.d er hann búinn að eiga sama símann í 8mán sem er nánast HSK-met, hann er líka víst flínkur í að brugga rabbabara-vín og klappa dóp-hundum.. Hann er búinn að vera mjög hjálpsamur í sambandi við trippin og oftast til í að aðstoða mig við ýmislega vitleysu sem mér finnst vera mjög sniðug þá stundina. Hann hefur líka þann frábæra eiginleika að loka eyrunum þegar ég er að rausa einhverja geðvonskuna.. jebb sú verður heppin sem nær í hann bróður minn:) Takk fyrir hjálpina, Einsi minn:)


» 6 hafa sagt sína skoðun

07.08.2007 23:03:45 / fjallageitin

upp á palli...inní tjaldi...

jæja þá er enn ein verslunarmannahelgin liðin í mínu lífi. Ég er orðin svo gömul að ég sat heima!! Var reyndar í fluttningum á Sunnudaginn, jebb við erum fluttar úr Aðótekinu. Bý núna í sveitasælunni í Hólunum og verð hér eitthvað fram í næstu viku. Þá flyt ég ásamt Jóhönnu af Örk í Heimahagann:) Hlakka mikið til og vonandi verðið þið öll sömul dugleg að heimsækja okkur!! Verst samt að Sandra er að flytja í bæinn:( Það verður erfitt að vera alltíeinu ein aftur í herbergi. Það er búið að vera algjör snilld að deila með henni verelse. Það sem við erum búnar að bulla í svefngalsa rétt áður en við lognumst út af.. Það er klárlega ekki prenthæft... En Sandra ætlar að fara að meika það í Höfuðborginni, og ég veit að hún mun gera það:) En aftur að helginni, það næsta sem ég komst því að fara á þjóðhátið var að skuttla Einari Kára og Helga Þór á Bakka. Það kittlaði pínu að skella sér, get ekki neitað því en.... Kíkti í staðin á ball í Úthlíð, bæði á Laug(komumst reyndar ekki inn) og á Sun. Svo fórum við hina leiðina heim og komum við á Flúðum og skoðuðum Hreppastráka. Okkur leist bara vel á það sem við sáum...

Núna er ég í sumarfrír, veit ekki hvað það varir lengi því ég er ekki búin að ákveða hvað ég ætla að gera í haust. Er mikið að spá í að gera einhvað venjulegt (alltsvo ekki hesta-einhvað) og fara svo aftur í hestana í jan. Spurningin er bara hvað mig langar að gera. Endilega komið með hugmyndir...

Tók inn 5stk trippi á miðvikudaginn í síðustu viku. 3 2v og 2 3v. Í gær setti ég svo þessi 2v út aftur.. Ætlaði bara að gera það leiðitöm og svoleiðis. Jaxlinn okkar Einsa er mjög sniðugur, risa stór. Mældi hann og hann var 132cm á stöng!!! (undan Heru og Kolvið) En Fregn hans Pabba var samt stærri 135cm en hún er ekki eins mikil.(undan Gulltoppu og Flótta) Þjórsá er líka 132cm( undan Áru og Kolvið) Hvítá og Glymur eru ennþá hér heima, enda langar mig að gera þau helst reiðfær í haust. (svona fyrst ég er ekki í vinnu...) Hvítá mín (undan Áru og Kapal) er ekkert endilega augnakonfekt.. Hún er eiginlega bara ljót!! En það er alltílegi, ræktunin mín getur ekki annað en farið uppá við í þeim efnum... Glymur( undan Heru og Gusti) er ótrúlega rólegt dýr. Verður örugglega snilldar smalahestur:)

En jæja ég má nú ekki blogga yfir mig, gæti fengið harðsperrur í puttana.. Það er ekki eins og ég sé einhvað fljót að skrifa...

Sjáumst:)


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.07.2007 12:45:22 / fjallageitin

Smala og smala og smala...

Halló halló !! Ég veit mar á ekki að blogga þegar það er sól og blíða... En verð samt að henda inn nokkrum línum. En yndislegt sumar veður:) Það er bara gaman að vera til. Af mér er bara allt gott að frétta. Brunaði í gær norður á Blöndós á Dreka. Tilefnið var hjónavígsla Sveinstaðaskötuhjúa, athöfnin var mjög falleg og bæði sögðu JÁ þannig að úr þessu varð heljarinnar gleði. Brunaði ég svo til baka seint í gær og var stundum á aðeins of miklum hraða. En hann Dreki minn er alltaf mjög heimfús..

Svo eru núna smalamennskur og fleirra skemmtilegt:) Þetta finnst mér alltaf mjög skemmtilegur tími, það er fátt skemmtilegra en að geysast um hagann á góðum hesti á eftir skjátum. Stundum lendir maður í bralli og það er bara ekkert verra... ;) Hef aðeins verið að velta þessu fyrir mér, þessu fyribæri smalahestur. Hér á þessum bæ eru flestir hestarnir góðir smalahestar, reiðhestar og margir hverjir hafa gert það gott á keppnisvellinum líka. Ég hef riðið fullt af 1v merum og þær eru ekki allar efni í góðan smalahest!! Ég held að aðalega sé ástæðan sé uppeldið. Hér eru hagarnir mjög þýfðir. (alltsvo mikið af þúfum) Og stóðinu er smalað töluvert oft og þá geysist hópurinn yfir allar þúfurnar. Verða þar af leiðandi fótvissari:) Svo held ég að afgangurinn sé tamningin og þjálfunin. Að mestu leiti allavegana. Mér finnst smalahestur æðsti titill sem nokkur hestur getur hugsað sér!!

Jæja Pabbi er að kveikja í hádegismatnum, grillið stendur í ljósum logum!! Best að fara að borða brunasteik:)

Sjáumst............


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.06.2007 16:38:36 / fjallageitin

HÆ HÓ JUBB'I JEI ÞAÐ ER KOMINN 17JÚNÍ!!!

Jæja löngu kominn tími á blogg en það er bara búið að vera mikið að gera. Planið var að blogga þegar það væri rigning og það kom fullt af rigningu en... Ég ætla mér aðeins of mikið miða við 24tíma á sólahring. En svona er þetta bara, ég kem mér alltaf í of mikið, mjög sjaldan sem ég hef ekkert að gera eða leiðis. Sem betur fer:lol:

Sýningarnar kláruðust í síðustu viku, Djásnið fór í dóm. Fór að heiman sem ljótur gæðingur en kom heim sem falleg bykkja!!! Það var samt gaman að hitta allt gengið, það er oftast sama fólkið á þessum sýningum og í fyrra og hittifyrra kynntist ég sumu af þessu fólki. Ég verð samt að viðurkenna að ég er ekki svona mikið fyrir tölur eins og sumt af þessu yndislega hestafólki. Allt spurning um kommu hér og kommu þar. Mér finns mínir hestar bestir þrátt fyrir að þeir séu ekki með 8,5 eða 9 fyrir tölt eða skeið!!!

Sambúðin í Apótekinu gengur ljómandi vel, ég og Sandra erum reyndar aldrei heima. Kannski gengur hún þess vegna svona vel8) Við erum núna að leita að nýju og kannski aðeins stærra húsnæði, og þurfum að finna það fyrir ágústmánuð...

Það eru samt ótrúlega margir búnir að koma í heimsókn til okkar, þrátt fyrir að við séum sjaldan heima. Og um helgar er þetta líkari gistiheimili. Fólk hefur sofið á ýmsum stöðum í íbúðinni, á gólfinu, á sófanum og meiraðasegja í baðkerinu!!!

Áðan var 17júnigleði í Einbúa. Við famelían skelltum okkur og við Darri fórum ríðandi á gamla góða Riddara með Íslenskafánann í vasanum. Svo skellti ég mér ásamt Darra í víðavangshlaup. Fékk verðlaunaskjal og allt:D Heppin ég!!! Það er samt rosalegt hvað hringurinn er búinn að stækka síðan ég var úng! Ég var bara hálf uppgefin eftir hálfan hring...:S Þarf klárlega að koma mér í betra form áður en rekið verður á fjall.;)

En nú verð ég að pilla mér á bak, er búin að járna allt gengið nema eina meri. Það datt reyndar undan Kostinum þagar ég var að smala á honum í morgun, þannig að ég þarf aðeins að hugsa minn gang..

Þetta eru snillingarnir sem eru nú komnir heim og bíða klárlega óþolinmóðir eftir því að komast í reiðtúr;) :               

Riddari, Háfeti, Tígull, Sleipnir, Djásn, Hafberg, Brási, Gosi, Sera, Fálki, Kostur, Fjarki, Voli, Dirfska og svo tvær merar frá Björk, Lukka og Fiðla. Engin smá hópur þetta þannig að mér er ekki til setunar boðið!! Að vísu á eftir að tínast úr þessu einhvað...

þanngað til næst... Kæiktu í kaffi í apótekið.. eða bara í Hólana...


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.05.2007 21:41:24 / fjallageitin

Heimasætan í Apótekinu..

Jebb minns er flutt í apótekið!! Ég, Sandra og Jóhanna úr xfaktor erum fluttar á Austurveg 44. Allir velkomnir í kaffi!!

Sjáumst8)


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.05.2007 03:40:23 / fjallageitin

..tilgangslausar staðreyndir um mig..

1.Ég þoli ekki...  bensínljósið... Ég þoli það als ekki, fríka út þegar þetta gula helv byrjar að láta ljós sitt skína. Samt veit ég ekki afhverju því ég hef bara einu sinni orðið bensínlaus og þá var það allt Hörpu að kenna!! Þess vegna á ég stundum erfitt með að stela bílnum hans Einars... Það logar býsna oft þar...

2. Ég skil.. alltaf eftir smá í glasinu.. Alltaf þegar ég fæ mér að brekka klára ég aldrei úr glasinu! Og alveg sama þótt ég einsetji mér að klára þá tekst það ekki!!

3.Ég bý.. alltaf um rúmið og þá meina ég alltaf!! Meiraðasegja ef ég er á hoteli þá bý ég sjálf um, vil ekki að einhver annar sé að þukla á minni sæng!! Og núna þegar ég er að vaka á nóttunni yfir fénu þá langar mig að búa um milli kría.. Sem getur ekki talist eðlilegt.

4.Ég byrjaði... ekki að drekka bjór fyrr en 2002!! Drakk bara sterkt fram að þeim tíma! Og varð aldrei þunn daginn eftir. Fannst hreinlega þessi eðaldrykkur vondur!! Það sem maður gat verið ungur og vitlaus.. Núna drekk ég bjór eins og mér sé borgað fyrir það;) Já það var ýmislegt sem maður lærði í þessu verknámi..

5. Ég kann ekki.. á tæki!! Alskonar rafmagnstæki og svoleiðis dót. Það virkar bara ekkert hjá mér!! Kann ekki einu sinni á fjarstýringuna á sjónvarpinu!! Á mjög erfitt með að stilla útvarpið, meiraðasegja í bílnum þar sem er leitari..

6.Ég er... rosalegur lestrarhestur.. Ég get lesið ótrúlega hratt,þótt ég segi sjálf frá. Klár hiklaust eina bók á kveldi ef ég er í stuði og þá erum við ekki að tala um Litlu-smábarnabækurnar. Heldur bara alvöru bækur. 

7. Ég get.. verið í ull frá toppi til táar!! Stingur mig ekki og því meiri og þykkari því betra. Átti einu sinni ullarkjól sem ég dýrkaði! Varð aldrei kalt í honum;) Heill þér íslenska ull sem kemur af íslensku sauðkindinni!

8. Ég er... mjög metnaðarlaus !! Og það fer geðveikt í taugarnar á mér. Óska hér með eftir meiri metnað og einnig smá keppnisskapi líka því mig vantar svoleiðis!!

9. Ég get.. vaknað hvenar sem er. Það hefur aldrei háð mér að vera lengi á lappir á morgnana, annað en Harpa og Einsi.. Og svo er ég líka kvöldsvæf...

10. Ég á.. mjög lítið af hestum!! Já það er rétt! Ég á veturgamalt mertrippi og 3vmeri. Svo á ég einn fola með Einsa og 2 tamdar merar með Pabba. Í allt gera þetta 4 og hálft, sem er ekki svo íkja mikið. Það er kannski ekki nema von að ég á ekki fleirri þegar allir mínir hestar fara í hestaland!


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Klukkan
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti